Skilmálar

Seljandi. Hluthafinn AB, sænskt skráningarnúmer (org.nr.) 559441-5811, Kungsängsgatan 63 B, Uppsala, Svíþjóð, netfang thorsteinn@hluthafinn.is, virðisaukaskattsnúmer SE559441581101.

Skjöl úr fyrirtækjaskrá. Hvert skjal kostar 1.990 kr., en 1.290 kr. fyrir áskrifendur. Verðið er ákveðið við kaup eftir því hvort þú ert skráður inn sem áskrifandi. Greitt er með korti í gegnum Stripe og hver pöntun gildir fyrir eitt skjal. Skjalið er afhent sem PDF-skrá eins og það er varðveitt í fyrirtækjaskrá. Efni þess er hvorki lesið, unnið né birt á síðunni.

Afhending. Að greiðslu lokinni sendum við niðurhalshlekk á netfangið sem þú gafst upp við kaupin um leið og skjalið er tilbúið, venjulega innan fárra mínútna, og hann birtist einnig á staðfestingarsíðunni. Hlekkurinn gildir í 30 daga. Þú getur einnig skráð þig inn með sama netfangi og fundið skjalið undir Keypt skjöl. Ef hlekkurinn rennur út má fá nýjan á síðunni Senda hlekk aftur.

Endurgreiðsla. Ef ekki tekst að afhenda skjalið er greiðslan endurgreidd sjálfkrafa í heild sinni á sama kort.